18.3.2024
Ársuppgjör Isavia fyrir árið 2023
Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2023 var jákvæð um 8,1 milljarð króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 5,2 milljarða króna árið 2022. Ef horft er til heildarafkomu ársins var hún jákvæð um 2,1 milljarð króna samanborið við neikvæða heildarafkomu upp á 617 milljónir króna árið 2022. „Árið 2023 var í meginatriðum í takt við okkar væntingar. Við fundum vissulega fyrir áhrifum efnahagsumhverfisins á neyslu almennings og eldsumbrotin á Reykjanesskaganum en engu að síður tókst að mínu mati afar vel til við að mæta þeim áhrifum í rekstrinum“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.