14.8.2023
Fjórða stigi náð í kolefnisvottunarkerfi Alþjóðasamtaka flugvalla
Stefna Keflavíkurflugvallar í loftslagsmálum, og aðgerðir að því að draga úr kolefnisspori flugvallarins í heild, hafa hlotið fjórða stig kolefnisvottunarkerfis Alþjóðasamtaka flugvalla (ACI). Kolefnisvottunarkerfið, ACA (Airport Carbon Accreditation), metur það hvort flugvellir séu að mæla kolefnislosun með réttum hætti og metur einnig árangur aðgerða til að minnka kolefnisspor þeirra. Markmiðið er að draga úr umhverfisáhrifum flugvalla með því að mæla kolefnislosun, stýra henni og minnka.