27.4.2022
Isavia og Tern Systems undirrita samning um Orion ökuherminn á Keflavíkurflugvelli
Isavia ohf. og Tern Systems hafa undirritað samning um nýjustu útgáfu af ökuherminum Orion Drive sem notaður verður fyrir akstursþjálfun starfsfólks á Keflavíkurflugvelli. Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia, og Magnús Már Þórðarson, framkvæmdastjóri Tern Systems, undirrituðu samninginn.