13.4.2022
BílastæðI við Keflavíkurflugvöll í fullri notkun
Isavia vill benda farþegum, sem eru á leið til útlanda og hyggjast leggja bíl sínum við flugstöðina, á að bílastæðin eru nú í fullri notkun. Því hvetjum við ferðalanga til þess að notfæra sér aðra samgöngumáta, líkt og hópbifreiðar, leigubíla, skutl eða strætó.