23.8.2022
Fyrsta farþegaflug rafmagnsflugvélar á Íslandi
Það urðu tímamót í flugsög Íslands á Reykjavíkurflugvelli í dag þegar rafmagnsflugvél var í fyrsta skiptið flogið með farþega á Íslandi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegarnir. Isavia er meðal helstu bakhjarla félagsins ásamt Icelandair, Landsvirkjun og Hótel Rangá. Aðrir bakhjarlar eru Landsbankinn, Flugskólinn Geirfugl, Flugskóli Reykjavíkur, Flugakademía Íslands, ásamt Matthíasi, Friðriki og Herjólfi Guðbjartssyni. Allt eru þetta fyrirtæki og einstaklingar sem vilja leggja sitt af mörkum til þess að flýta orkuskiptum í flugi.