Hoppa yfir valmynd
3.6.2022
Air Canada flýgur til Keflavíkur á ný

Air Canada flýgur til Keflavíkur á ný

Air Canada hefur á ný hafið sumarflug sitt milli Keflavíkurflugvallar annars vegar og Toronto og Montreal hins vegar. Air Canada flaug síðast til Íslands 2019. Flogið verður fjórum sinnum í viku til og frá Toronto og þrisvar sinnum í viku til og frá Montreal. Flogið verður milli þessara áfangastaða fram í byrjun október.

„Við bjóðum Air Canada innilega velkomið aftur til Keflavíkurflugvallar eftir tvö erfið farsóttarár,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia. „Air Canada er mikils metinn samstarfsaðili og við hlökkum til að sjá okkar mikilvæga samband halda áfram að þróast á komandi árum. Endurkoma Air Canada er skýrt merki þess að Ísland er spennandi og vinsæll áfangastaður.“

„Þetta eru mjög spennandi fréttir fyrir viðskiptavini okkar á Íslandi sem geta nú byrjað að skipuleggja sína næstu ferð til að enduruppgötva Kanada,“ segir Marc Sam, umsjónarmaður Íslandsflugs Air Canada. „Beint flug okkar frá Keflavík til Toronto og Montreal mun gera viðskiptavinum okkar á Íslandi kleift að komast beint til Kanada og þaðan áfram til áfangastaða í bæði Norður- og Suður-Ameríku. Við hlökkum til að bjóða viðskiptavini okkar velkomna um borð.“

Flugáætlun Keflavík - Toronto

Flug

Frá

Brottför

Til

Koma

Tíðni

Starfstímabil

AC 1011

Keflavík

10:00

Toronto

11:55

Mán., mið., fös., sun.

3. júní til 9. október 2022

AC 1010

Toronto

23:00

Keflavík

08:35 (+1)

Mán., mið., fös., sun.

1. júní til 7. október 2022

 

Flugáætlun Keflavík - Montreal

Flug

Frá

Brottför

Til

Koma

Tíðni

Starfstímabil

AC 1013

Keflavík

10:00

Montreal

11:25

Þri., fim., lau.

2. júní til 8. október 2022

AC 1012

Montreal

23:30

Keflavík

08:35 (+1)

Þri., fim., lau.

2. júní til 8. október 2022