Hoppa yfir valmynd
15.12.2022
Svissneska flugfélagið Edelweiss flýgur til Akureyrar sumarið 2023

Svissneska flugfélagið Edelweiss flýgur til Akureyrar sumarið 2023

Svissneska flugfélagið Edelweiss hefur ákveðið að hefja flug til Akureyrar sumarið 2023. Flogið verður milli Zürich í Sviss og Akureyrar á föstudögum frá 7. júlí til 18. ágúst og verða ferðirnar fram og til baka sjö talsins. Þetta er í fyrsta sinn sem flugfélagið Edelweiss flýgur til Akureyrar en það hefur, síðan 2021, flogið áætlunarflug milli Sviss og Keflavíkurflugvallar. Ferðalangar frá Zürich geta bókað flug á tímabilinu sem og farþegar frá Akureyri. Hægt er að bóka flugferðir á vef Edelweiss.

Edelweiss segir að Ísland sé einn vinsælasti áfangastaður ferðalanga frá Sviss. Félagið hafi eflt flugleiðina frá Sviss til Keflavíkurflugvallar á síðustu tveimur árum og hafi orðið vart við áhuga ferðafólks á að fara um allt Ísland. Sérstakur áhugi væri á að skoða náttúruna á Norðurlandi.

 „Það er okkur mikið ánægjuefni að flugfélagið Edelweiss hafi  ákveði að hefja flug til Akureyrar,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Þetta er afrakstur þess öfluga kynningarstarfs sem Isavia Innanlandsflugvellir, Íslandsstofa, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú  hafa unnið í þéttu samstarfi þar sem áherslan hefur verið á að kynna nýjar  gáttir til Íslands. Auk alls þessa hefur aðkoma íslenskra stjórnvalda skipt sköpum. Edelweiss bætist nú í hóp með Niceair og þýska flugfélaginu Condor sem fljúga milli Akureyrar og áfangastaða erlendis. Condor flýgur jafnframt milli Frankfurt og Egilsstaða næsta sumar“

Edelweiss flýgur til 89 áfangastaða um allan heim frá Zürich flugvelli. Félagið flýgur með farþega til og frá Akureyrarflugvelli næsta sumar í Airbus A320 þotu sem tekur allt að 174 farþega í sæti. Edelweiss segir í tilkynningu að félagið sjái tækifæri fyrir farþegar þeirra, sem vilja komast til Akureyrar, að tvinnað saman flugleiðir félagsins til Norðurlands og Keflavíkurflugvallar. Edelweiss er nú í vetur komið í hóp heilsársflugfélaga um Keflavíkurflugvöll með þrjár ferðir í viku allan veturinn og fjórar ferðir í viku síðasta sumar.