Hoppa yfir valmynd
24.6.2024
Húrra Reykjavík opnar glæsilega verslun í KEF

Húrra Reykjavík opnar glæsilega verslun í KEF

Húrra Reykjavík, ein vinsælasta fataverslun landsins, hefur opnað nýja og glæsilega verslun í brottfararsal Keflavíkurflugvallar (KEF). Í versluninni geta gestir flugvallarins keypt fatnað og strigaskó frá þekktum og vinsælum vörumerkjum á borð við Arc‘teryx, Salomon, OpéraSPORT, Sporty & Rich, Norse Projects, Carhartt WIP, Stone Island og Birkenstock.

„Okkar markmið er að bjóða flugvallargestum upp á framúrskarandi vöruúrval frá heimsþekktum vörumerkjum, sem og ungum og spennandi. Allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en við höfum sérvalið flottan fatnað og skó frá vinsælustu vörumerkjunum okkar. Við leggjum líka sérstaka áherslu á að bjóða upp á íslensk vörumerki á flugvellinum,“ segir Sindri Snær Jensson, annar eigandi Húrra. „Það er mikið gleðiefni fyrir okkur, í tilefni af 10 ára afmæli Húrra, að opna verslun á fjölfarnasta stað landsins. Við leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu og hlökkum til að aðstoða gesti við að finna réttu flíkina fyrir ferðalagið.“

Jón Davíð Davíðsson og Sindri Snær Jensson, stofnendur Húrra Reykjavík

Þrátt fyrir að verslunin verði eins konar þverskurður af verslunum Húrra í Reykjavík verða einnig vörur til sölu sem eingöngu verða til sölu á flugvellinum. Sérstök flugvallarlína frá Reykjavík Roses verður í boði, ásamt nýja íslenska vörumerkinu, Arason, sem nýlega opnaði verslun á Skólavörðustíg. Þar að auki verður hægt að versla vörur frá íslenska golfmerkinu Brutta Golf og handgerða skartgripi frá Studio Hekla Nina.

„Við erum gífurlega ánægð með að þessi skemmtilega og flotta verslun bætist í hóp verslana á flugvellinum. Þetta mun án efa gera KEF að enn áhugaverðari viðkomustað fyrir gesti sem vilja gera góð kaup og næla sér í flottan tískufatnað,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga hjá Isavia.

Hönnun verslunarinnar er í höndum HAF Studio og einblínt var á stílhreina og nútímalega hönnun, fallega lýsingu og að skapa afslappaða og hlýlega stemningu þar sem gestir geta notið sín. Sérvalin tónlist mun þar að auki skapa skemmtilega stemningu fyrir gesti á leið í fríið.