Hoppa yfir valmynd
20.6.2024
Drónabann yfir 60 metra hæð vegna eldgoss gildir út júní

Drónabann yfir 60 metra hæð vegna eldgoss gildir út júní

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar.

Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 30. júní næstkomandi.

Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið [email protected] eða í síma 831-1644.