Hoppa yfir valmynd
24.4.2019
Myndlistarsýning Tolla opnuð í flugstöðinni á Ísafirði

Myndlistarsýning Tolla opnuð í flugstöðinni á Ísafirði

Miðvikudaginn 17. apríl var opnuð sýning á olíumálverkum eftir Tolla í flugstöðinni á Ísafirði. Sýningin er í boði Isavia, rekstraraðila flugvallarins. Tolli hefur áður boðið upp á samskonar sýningar í flugstöðvunum á Egilsstöðum og Akureyri.

Listamaðurinn Tolli er ekki þekktur fyrir að fara troðnar slóðir þegar kemur að sköpuninni, framsetningu á listinn eða vali á sýningarými. Síðustu misseri hefur málarinn sótt aftur í ræturnar og ferðast um landið en hann hefur oft talað um það að árin sem farandverkamaður hafi mótað hann mikið á yngri árum. Það kemur fram í listinni um leið og það landsbyggðina togar sífellt í hann. Tolli hefur sýnt víða, í yfirgefnum verksmiðjum, tónlistarhúsum og í verslunarmiðstöðvum. „Mér finnst áríðandi að fara með listina á vettvang. Hafa hana ekki fast í sínu verndaða umhverfi sýningarsalana í borginni. Heldur fara með hana til fólksins.“

 

Tímasetningin fyrir sýninguna á Ísafirði er engin tilviljun þar sem tónlistarhátíðin „Aldrei fór ég suður“ verður þar um páskanna. En svo heldur Tolli áfram og opnar sýningu í flugstöðinni í Vestmannaeyjum í kringum goslokahátíðina. En í framhaldi af sýningum Tolla mun hann og vinna með Isavia í að fara með yngri og óreyndari listamenn í sama ferðalag á sömu flugstöðvar á næstu misserum.

 

„Ég ryð brautina og vinn með Isavia í því að gera flugstöðvarnar sýningavænar og nota mína list til að venja farþega og ferðalanga við hugmyndina að búið að sé að setja upp sýningarrými í þessum fallegu byggingu. Svo koma flottir ungir listamenn sem eru að springa úr sköpunarkrafti og fylla þessi rými af enn meiri gleði,“ segir Tolli.