Hoppa yfir valmynd
12.7.2024
875 þúsund gestir í júní

875 þúsund gestir í júní

Gestir Keflavíkurflugvallar (KEF) voru 874.964 í júní í ár, sem er 1,6% meira en í sama mánuði árið á undan.

Alls flugu 25 flugfélög til 79 áfangastaða í júní. Vinsælustu áfangastaðirnir voru New York, London, Kaupmannahöfn, París og Boston.

Mest var að gera á flugvellinum 30. júní þegar 34.590 gestir lögðu leið sína um völlinn.

Brottfarir Íslendinga í júní voru um 65 þúsund sem er 17% aukning frá júní í fyrra.

Samkvæmt talningu Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra farþega frá landinu 212 þúsund sem er -9% fækkun frá júní í fyrra. Flestar brottfarir voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna (38%), þar á eftir Þjóðverjar (7%), Bretar (5%), Pólverjar (4%) og Kanadamenn (4%).