Hoppa yfir valmynd
11.6.2018
GREIÐARI LEIÐ AÐ FLUGUPPLÝSINGUM

GREIÐARI LEIÐ AÐ FLUGUPPLÝSINGUM

  • Nýr vefur Isavia farinn í loftið
  • Hægt að fá upplýsingar um flug og þjónustu á Keflavíkurflugvelli í gegnum Twitter og Facebook Messenger
  • 11 milljón flettingar á vef Isavia á ársgrundvelli

Allir farþegar sem fara í gegnum Keflavíkurflugvöll geta nú fengið upplýsingar um bókuð flug sendar beint til sín á Twitter og Facebook Messenger. Þetta er meðal þeirrar þjónustu sem er í boði á nýjum vef Isavia og gagnast fólki nú þegar lagt er í langferð í sumar.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, opnaði vefinn á aðalfundi félagsins í byrjun apríl. Þar er öll upplýsingagjöf um flugvelli Isavia á einum stað. Við gerð vefsíðunnar var byggt á nýrri hugmyndafræði og hún skipulögð út frá þörfum notenda.

Vefsíður Isavia og Keflavíkurflugvallar voru sameinaðar. Þrettán áætlunarflugvellir eru á einum stað, en hver þeirra með sjálfstæða undirsíðu. Síðan er auðveldlega aðgengileg hvort sem er í tölvum eða snjalltækjum.

Nýr vefur – ný þjónusta

  • Meiri tenging er við ferðaþjónustuna.
  • Nánari upplýsingar veittar um flug og það með gagnvirkum hætti.

Með nýrri þjónustu frá írska fyrirtækinu BizTweet er gervigreind nýtt til að koma upplýsingum til notenda með þeim hætti sem þeir kjósa. Hægt að fá upplýsingar um flug og þjónustu á Keflavíkurflugvelli sendar í gegnum Twitter eða Messenger forrit Facebook. Helstu flugvellir heims eru farnir að nýta sér þessa þjónustu, þar á meðal alþjóðaflugvellirnir í Melbourne í Ástralíu og Dúbaí sem og London City-flugvöllur.

Farþegar geta þannig fengið upplýsingar um flug sitt í rauntíma á þeim samskiptamiðli sem þeir velja. Hvert skref í þeirra ferðalagi er tíundað þar til lent er á áfangastað.

„Isavia vill veita farþegum greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem þeir þurfa að fá þegar þeim hentar og með þeim hætti sem þeir vilja,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. „Til þess viljum við nýta nýjustu og bestu tækni. BizTweet hefur gert okkur þetta mögulegt.“

Paul Brugger, framkvæmdastjóri BizTweet segir það mikið ánægjuefni að veita Isavia þessa þjónustu. „Nýstárleg tækni BizTweet gefur flugvallarrekendum einstakt tækifæri til að veita skilaboð sem byggja á raungögnum. Þetta þýðir að viðskiptavinir Isavia, þ.e. farþegarnir, fá upplýsingar sem eiga beint erindi við þá.“

11 milljón flettingar á vefnum

Vefir Isavia hefa verið mikið notaðir. Síðastliðið ár fóru um ein og hálf milljón netenda í 4,8 milljónir heimsókna á vef Keflavíkurflugvallar  sem þýðir að hver notandi fer rúmlega þrisvar sinnum á ári að meðaltali inn á vefinn. Fjórar milljónir flettinga voru á ensku síðunni á ársgrundvelli en sjö milljónir flettinga á íslensku síðunni.

Með aukinni þjónustu og greiðara aðgengi að upplýsingum um Keflavíkurflugvöll, alla aðra flugvelli landsins, komur og brottfarir og fjölbreytta þjónustu Isavia má ætla að umferð um nýjan vef fyrirtækisins verði jafnvel enn meiri.