Hoppa yfir valmynd
11.6.2024
EasyJet til átta áfangastaða frá Keflavík næsta vetur - Birmingham bætist við

EasyJet til átta áfangastaða frá Keflavík næsta vetur - Birmingham bætist við

Breska flugfélagið easyJet hefur fjölgað áfangastöðum sínum frá Keflavíkurflugvelli úr sjö í átta með því að bæta Birmingham við. Áætlun félagsins fyrir veturinn 2024 til 2025 hefur verið kynnt. Flogið verður tvisvar í viku á milli Keflavíkurflugvallar og Birmingham, þriðjudaga og laugardaga, fram í lok mars á næsta ári.

„Við á Keflavíkurflugvelli fögnum þeirri ákvörðun easyJet að bæta áttunda áfangastaðnum sínum við frá Keflavíkurflugvelli næsta vetur,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar. „EasyJet er einni stærsti viðskiptavinur okkar. Þessi ákvörðun er enn eitt merki þess hversu mikla trú félagið hefur á áfangastaðnum Íslandi.“

Auk Birmingham býður easyJet upp á sjö aðra áfangastaði þaðan sem flogið er til Keflavíkurflugvallar. Það eru Bristol, Edinborg, London Gatwick, Luton, Manchester, Mílanó og Orly-flugvöllur í París. Ferðir milli Keflavíkurflugvallar og þessara áfangastaða samkvæmt vetraráætlun easyJet hefjast í byrjun október og er flogið fram í lok mars 2025.