7.9.2021
Farþegum fjölgar en óvissa áfram vegna aðgerða á landamærum
Nærri 900 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í sumar. Enn er þó töluvert í að umferðin nálgist þann fjölda sem ferðaðist um flugvöllinn árið 2019, fyrir Covid-19 faraldurinn. Þá fóru tæplega 2,5 milljónir farþega til og frá Keflavíkurflugvelli í júní, júlí og ágúst það ár. „Það eru þó blikur á lofti,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Sætanýting hefur verið stigvaxandi framan af í sumar en við sjáum að það er farið að draga úr eftirspurn. Það er erfitt að draga aðra ályktun en þá að þarna séum við að sjá beina afleiðingu af hörðum, viðvarandi og síbreytilegum sóttvarnaraðgerðum á landamærunum.“