5.7.2021
Í fyrsta skipti í rúma 15 mánuði fóru yfir 10 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll á einum degi
Laugardaginn 3. júlí síðastliðinn fóru 10.580 manns um Keflavíkurflugvöll. Svo margir farþegar hafa ekki farið um völlinn á einum degi frá því 13. mars 2020, eða fyrir rúmum 15 mánuðum. Daginn eftir, eða þann 14. mars 2020, settu bandarísk yfirvöld á ferðabann til Bandaríkjanna vegna Covid-19 og fækkaði farþegum um Keflavíkurflugvöll mikið næstu vikuna á eftir.