28.12.2021
Isavia Innanlandsflugvellir semja við Byggingafélagið Hyrnu um stækkun flugstöðvar á Akureyrarflugvelli
Isavia Innanlandsflugvellir og Byggingafélagið Hyrna hafa undirritað samning um smíði viðbyggingar við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Samningsupphæðin fyrir verkið er 810,5 milljónir króna. Það voru þau Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, og Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Hyrnu, sem undirrituðu samninginn í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli.