11.2.2022
Isavia undirritar Toulouse-yfirlýsinguna
Isavia hefur undirritað Toulouse yfirlýsinguna um sjálfbærni og kolefnisleysi í flugtengdum rekstri. Nærri 100 flugvallarrekendur, samtök þeirra, og fulltrúar um 200 flugvalla undirrituðu yfirlýsinguna. „Þessi yfirlýsing er mikilvægt næsta skref í átt að kolefnislausri framtíð í flugvallarekstri,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia.