16.9.2022
Forstjóri EUROCONTROL heimsótti Isavia ANS – aðlögunarsamningur Íslands að EUROCONTROL undirritaður
Eamonn Brennan, forstjóri Eurocontrol, heimsótti í vikunni höfuðstöðvar Isavia ANS við Reykjavíkurflugvöll, fundaði með Kjartani Briem, framkvæmdastjóra
Isavia ANS og kynnti sér starfsemi félagsins. Brennan hélt síðan erindi þar sem hann ræddi helstu kosti aðildar Íslands að Eurocontrol, sem er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur það markmið að styðja við flug og flugleiðsögu í Evrópu. ávarpi sínu fagnaði Brennan þeim áfanga að Ísland og og Eurocontrol hefðu fyrr þann sama dag undirritað aðlögunarsamning Íslands að stofnuninni. Það markar áform Íslands um að gerast aðili að stofnuninni frá 1. janúar 2025. Samninginn undirrituðu þeir Brennan og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu.