16.5.2023
Isavia og NIB undirrituðu lánasamning vegna framkvæmda á Keflavíkurflugvelli
Isavia ohf. hefur gert samning við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) um lán til tíu ára að fjárhæð 50 milljóna evra, eða sem nemur jafnvirði um 7,5 milljörðum íslenskra króna, vegna framkvæmda á Keflavíkurflugvelli, sér í lagi við austurálmu flugstöðvarinnar. Lánasamningurinn var undirritaður þriðjudaginn 16. maí.