Hoppa yfir valmynd

Hornafjarðarflugvöllur er staðsettur fimm kílómetra norður af Höfn í Hornafirði á suðausturlandi. Flugfélagið Ernir sinnir áætlunarflugi til og frá Reykjavíkurflugvelli en flugið tekur um 55 mínútur. Flogið er tvisvar á dag mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og einu sinni á dag á sunnudögum. Í júní, júlí og águst eru aukaflug á þriðjudögum, laugardögum og sunnudögum.

Nánari upplýsingar um flugið og bókanir er að finna á vefnum www.ernir.is.

FYRIR FLUG

Við mælum með því að farþegar mæti tímanlega fyrir flug til þess að forðast biðraðir og svo flugfélagið haldi áætlun. Gott er að mæta á flugvöllinn um það bil 30 mínútum fyrir flug.

Innritun í flug fer fram í flugstöðinni. Við minnum farþega á að hafa ávallt persónuskilríki meðferðis. Flugfélagið Ernir sér um innritun farþega og nánari upplýsingar er að finna á vefnum www.ernir.is.

SAMGÖNGUR 

Bílaleiga Akureyrar / Europcar Car Rental er með þjónustu á flugvellinum. Nánari upplýsingar og bókanir er að finna á vef bílaleigunnar www.holdur.is.

HVAÐ ER Í BOÐI Á HORNAFIRÐI?

Stórbrotin náttúra, fjölskrúðugt dýralíf og blómstrandi menning. Nánari upplýsingar má finna á vef markaðsstofu Suðurlands.


HAFA SAMBAND 

Ef þig vantar nánari upplýsingar um Hornafjarðarflugvöll og starfsemi Isavia á flugvellinum bendum við á netfangið isavia@isavia.is. Einföldum fyrirspurnum er einnig svarað í síma 424-4078