Hoppa yfir valmynd
30.4.2024
Drónabann yfir 60 metra hæð yfir jörðu framlengt til 31. maí 2024

Drónabann yfir 60 metra hæð yfir jörðu framlengt til 31. maí 2024

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa, að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna, bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar.

Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 31. maí nk.

Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið [email protected] eða í síma 831-1644.