Drónabann yfir 60 metra hæð yfir jörðu framlengt til 31. maí 2024
Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa, að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna, bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar.
Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 31. maí nk.
Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið [email protected] eða í síma 831-1644.