2.4.2020
Jákvæð afkoma af rekstri Isavia árið 2019
Þrátt fyrir töluverða fækkun ferðamanna á síðasta ári var afkoma Isavia samstæðunnar jákvæð um 1,2 milljarða króna eftir skatta, sem er lækkun um 3,1 milljarð króna frá fyrra ári. Ef tekið er tillit til niðurfærslu á viðskiptakröfum vegna falls Wow air nemur lækkunin milli ára um 1,2 milljarði króna. Tekjur ársins lækkuðu um 3,3 milljarða, sem er um 8% samdráttur á milli ára. Handbært fé nam um 9,2 milljörðum króna í árslok 2019. Farþegum um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 26% á milli ára, en flugvélum sem fóru um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið fækkaði um 7,5 prósent. Þá fækkaði innanlandsfarþegum um 11,4%