16.3.2021
Spurningakönnun Kadeco um framtíðarskipulag á Keflavíkurflugvallarsvæðinu
Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hefur fyrir hönd Isavia, íslenska ríkisins, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar hrundið af stað alþjóðlegri samkeppni um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis flugvöllinn. Kadeco hefur opnað fyrir spurningakönnun um verkefnið. Allir sem hafa áhuga á framtíðarþróun byggðar við Keflavíkurflugvöll eru hvattir til að taka þátt og hjálpa þannig til við að móta framtíð svæðisins.