21.3.2023
Ársuppgjör Isavia fyrir árið 2022
Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2022 var jákvæð um 5,2 milljarða króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 810 milljónir króna árið 2021. Tekjur jukust um 75% eða 15,7 milljarða króna milli áranna 2022 og 2021 og námu tekjurnar um 95% af tekjum ársins 2019. Farþegar um Keflavíkurflugvöll voru ríflega 6,1 milljón í fyrra samanborið við rúmlega 2,1 milljón árið 2021 og rúmar 7,2 milljónir farþega árið 2019 sem var síðasta heila rekstrarárið fyrir heimsfaraldur.