Tímasetningar og áhrif mögulegra verkfalla á flugsamgöngur
Ef af fyrirhuguðum verkföllum verður gætu þau haft áhrif á flugsamgöngur. Að neðan er nánari útlistun á tímasetningum og mögulegum áhrifum. Tekið skal fram að engar breytingar hafa verið gerðar á áætlunum flugfélaga og flugfélög láta farþega sína vita ef röskun verður á flugi.
Yfirlit um möguleg áhrif áætlaðra verkfalla á flugsamgöngur:
- Hópbifreiðafyrirtæki fara mögulega í verkfall frá kl 00:00 28. maí til 24:00 29. maí. Verkfallið gæti haft áhrif á rútuferðir til og frá Keflavíkurflugvelli.
- Frá 00:00 30. maí til 24:00 31. maí er áætlað verkfall hótelstarfsfólks. Við það mun þjónusta á hótelum mögulega skerðast.
- Mögulegt verkfall starfsmanna flugafgreiðsluaðila er áætlað frá klukkan 00:00 31. maí til 24:00 1. júní. Starfsmenn flugafgreiðsluaðila sem þjónusta flugfélög á Keflavíkurflugvelli meðal annars við eldsneytisafgreiðslu, innritun og að hlaða farangri um borð í flugvélar. Verkfall þeirra myndi geta haft áhrif á flugsamgöngur.
- Mögulegt verkfall starfsmanna olíufélaga frá klukkan 00:00 4. júní til 24:00 5. júní getur haft áhrif á bæði innanlands- og millilandaflug.
- Ef ekki semst fyrir 6. júní gæti komið til allsherjarverkfalls hjá VR, Eflingu, Hlíf og VSFK. Ef af verður getur það haft áhrif á bæði innanlands- og millilandaflug.